sunnudagur 5 september 09 2010
Póstlistaskráning
Póstlistaskráning
Skráðu netfangið þitt og fáðu tilkynningar sendar í tölvupósti
Nafn
Afskrá


Snyrtistofan Gyðjan ehf. er ein elsta starfandi snyrtistofa borgarinnar, en með nýju og fersku andliti. Núverandi eigandi, Jónína Kristgeirsdóttir snyrti-og förðunarfræðingur, tók við rekstri stofunnar 1997.


Í maí 2001 flutti Gyðjan í endurgert og glæsilegt húsnæði að Skipholti 50d. Stofan er staðsett í austanverðu húsinu, á jarðhæð, við hlið Tónastöðvarinnar.


Sumarið 2008 voru gerðar endurbætur á stofunni. Tæki og margskonar búnaður var uppfærður eða endurnýjaður, ásamt mörgu öðru. Því geta viðskiptavinir okkar gengið að því vísu, að sérfræðingar Gyðjunnar hafi öll tök á að hjálpa þér að ná eins góðum árangri og kostur er.

Hjá Gyðjunni starfa að jafnaði fimm til sex snyrtifræðingar og löggiltur fótaaðgerðafræðingur.

Snyrtistofan er aðili að 
Félagi Íslenskra Snyrtifræðinga 
og
Félagi Íslenskra Fótaaðgerðafræðinga