sunnudagur 5 september 09 2010
Póstlistaskráning
Póstlistaskráning
Skráðu netfangið þitt og fáðu tilkynningar sendar í tölvupósti
Nafn
Afskrá


Andlitsmeðferðir

Stundum er talað um, að ákveðin persóna sé andlit fyrirtækis eða vöru. Það er ekki að ástæðulausu. Andlitið er ímynd persónunnar, það sem fólk sér og dæmir aðra hluta líkamans af. Það er jafnframt sá hluti líkamans sem fæstir gera sér far um að hylja. Því er mikilvægt að andlit fólks, ekki síst kvenna, styrki sjálfsímynd viðkomandi.

Andlitsmeðferðir Gyðjunnar eru framkvæmdar af reyndum sérfræðingum, sem nota aðeins viðurkenndar vörur og traustan tækjabúnað. Hér að neðan gefum við frekari upplýsingar um þær andlitsmeðferðir, sem við höfum í boði.

Hydradermie andlitsmeðferð

Hydradermie er mjög árangursrík djúphreinsi-og rakameðferð fyrir andlit, háls, bringu og hina viðkvæmu húð umhverfis augun. 

Lesa meira =>

Hydradermi andlitslyfting

Hydradermie Lift er hátæknileg andlitslyfting sem lífgar húðina, sléttir andlitsdrætti og styrkir vöðva.

Lesa meira =>

 

 

Ávaxtasýru andlitsmeðferð 

Beauté Neuve ávaxtasýru-ensíma-meðferðin gerir húðina móttækilegri fyrir virkum efnum, þar sem hún eykur húðflögnun og eflir nýmyndun húðfrumna.

Lesa meira =>

 

Liftosome andlitsmeðferð

Liftosome er stinnandi meðferð með vítamína- og appelsínuþykkniskokkteil, sem húðin drekkur í sig vegna áhrifa leirkennds hitamaska.

Lesa meira =>

 

Ilmkjarna andlitsmeðferð

Aromatic-andlitsmeðferð felst í afar þægilegu nuddi með sérstaklega virkum ilmkjarnaolíum.  

Lesa meira =>

 

Lúxusandlitsmeðferð
 
Húðin er djúphreinsuð, hituð með gufu, nudduð og áhrifarík efni borin á hana. Mjög hentug meðferð þegar mikið stendur til.

Lesa meira =>

 

 

Ýmsar andlitsmeðferðir

Við bjóðum upp á margskonar meðferð aðra, svo sem nudd og maska, húðhreinsun og slípun.

 Lesa meira =>

 

Þér er velkomið að leita frekari upplýsinga um meðferðirnar eða spyrjast fyrir hvort þarfir þínar geti verið uppfylltar. Við svörum í síma 553 5044 á opnunartíma, en einnig má senda okkur tölvupóst

VerðlistiSækja verðlista á pdf formi