Hydradermie andlitsmeðferð
Hydradermie örvar efnaskipti húðarinnar og leiðir þannig til örari endurnýjunar fruma. Húðin fær meiri raka og mýkt, hún þéttist og verður áferðarfallegri. Hydradermie djúphreinsar húðina og skilar meðal annars mjög góðum árangri fyrir slæma bóluhúð, ásamt því að stuðla að rakajafnvægi og réttu sýrustigi húðar. Hydradermie má nota fyrir alla aldurshópa, enda notum við mismunandi gel eftir húðgerðum og sérþörfum viðkomandi. |




