Eftir hreinsun og milda djúphreinsun húðarinnar er vitamínþykknið smurt á húðina og bætt við stinnandi kremi. Grisja er sett þar yfir og síðan leirmaski, sem hitnar í 39°C til að auka innsíun húðar. Maskinn inniheldur appelsínu- og ginsengþykkni, sem eykur á virkni meðferðarinnar. Þegar maskinn hefur verið fjarlægður er húðin nudduð upp úr stinnandi geli til að fullkomna meðferðina. Liftosome-meðferðin er einstaklega áhrifarík. Hægt er að bjóða hana á hvaða árstíma sem er, eina sér eða í kúr, tvö skipti vikulega. Liftosome hentar vel til fjölbreytni við aðrar Guinot-stofumeðferðir. |




