sunnudagur 5 september 09 2010
Póstlistaskráning
Póstlistaskráning
Skráðu netfangið þitt og fáðu tilkynningar sendar í tölvupósti
Nafn
Afskrá


 

 

Nagla- og handsnyrting

Fallegar hendur eru mikilvægur þáttur í heildstæðu útliti fólks, bæði karla og kvenna. Vel snyrtar hendur eru merki um, að viðkomandi lætur sér annt um útlit sitt í víðara samhengi.


Gervineglur


Við bjóðum eingöngu upp á gervineglur úr Bio Sculpture Gel naglaefni, en það er unnið úr náttúrulegu efni frá Suður-Afríku.

Bio Sculpture hunangsgelneglur eru í raun naglameðferð, sem styrkir og bætir náttúrulegar neglur fólks. Neglurnar verða harðar, en þó sveigjanlegar og fá náttúrulega og gljáandi áferð.

Hunangsgelið er hægt að setja yfir eigin neglur þannig, að þær vaxi fram og verði sterkar. Einnig er hægt að framlengja eða búa til neglur úr gelinu. Eigin neglur koma mjög vel undan gelinu og hægt er að leysa það upp á 15 mínútum.

Í stuttu máli má segja, að neglurnar verði þunnar, sveigjanlegar, sterkar og náttúrulegar.


Handsnyrting

Við handsnyrtingu eru neglur þjalaðar, mótaðar og lakkaðar, og naglabönd snyrt. Jafnframt meðhöndlum við húðina eftir kúnstarinnar reglum. Við notum aðeins viðeigandi Alessandro-handsnyrtivörur til verksins.

Hafir þú spurningar um þjónustu okkar og meðferðir er þér velkomið að hringja til okkar í síma 553 5044 eða senda okkur tölvupóst.

VerðlistiVerðlisti á pdf formi