IPL-ljóstæknimeðferð
IPL-ljóstæknimeðferðin býður upp á margs konar meðferðarúrræði, sem gætu verið góð lausn fyrir aðstæður þínar.
 |
Fyrir |
 |
Eftir |
IPL-meðferðin byggir á notkun svokallaðs Xenon-ljóss. Það er staðsett inn í handfangi, sem meðferðin er framkvæmd með. Bakvið ljósið er spegill og filterinn að framan dregur úr hita ljóssins.
Meðferðarsvæðið dregur í sig hitann fá ljósinu og framkallast þá eftirfarandi áhrif á húðina:
Háreyðing: Liturinn í hárinu dregur í sig hitann frá ljósinu. Það ber hitann niður í hárrótina og veldur varanlegri eyðingu á hárfrumum í hársekk.
Fínar línur/ hrukkur: Frumur húðarinnar fá aukið líf. Húðin endurbætir sig sjálf eftir meðferðina vegna aukinnar frumuframleiðslu á Collagen-þráðum í neðri húðlögum.
Sprungnar háræðar / rósroði: Hitinn frá ljósinu fær háræðar til að dragast saman, svo húðin verður ekki lengur rauðsprungin. Árangur er jafnan merkjanlegur þegar í stað.
Litabreytingar/ blettir í húð: Hitinn frá ljósinu vinnur djúpt ofan í neðri húðlög og veldur þannig sundrungu í litafrumum, svo litablettir minnka verulega eða hverfa alveg.
Acne: Hitinn frá ljósinu vinnur vel gegn unglingabólum / Acne Vulgaris. Einnig örvast húðin og endurnýjast hraðar. Jafnframt kemst jafnvægi á húðbakteríuna Propionibacterium, sem veldur bólum. Acne-meðferð með IPL-tækninni kemur einnig í veg fyrir öramyndun í húð.
IPL-meðferðirnar eru sársaukalausar, því húðin skynjar einungis hitann frá Xenon-ljósinu. IPL inniheldur meðferðir fyrir stærri svæði líkamans, svo sem bak, bringu, fótleggi og handleggi, en einnig minni svæði, t.d. efri vör eða eyru.
Lesa meira um IPL ljóstæknimeðferð hér og umsagnir viðskiptavina hér
Meðferðarfjöldinn með IPL er mislangur eftir vali á meðferð, en allar meðferðirnar taka nokkra heimsóknartíma.
Af þeim sökum er ekki gefinn út fastur verðlisti en þér er velkomið að leita frekari upplýsinga um meðferðina eða tilboða í IPL-meðferð. Við svörum í síma 553 5044 á opnunartíma, en einnig má senda okkur tölvupóst.
Verðlisti / Sækja verðlista á pdf formi