sunnudagur 5 september 09 2010
Póstlistaskráning
Póstlistaskráning
Skráðu netfangið þitt og fáðu tilkynningar sendar í tölvupósti
Nafn
Afskrá


Brúnkumeðferð

 

Íslendingar hafa á síðustu áratugum haft mikinn áhuga á brúnkusöfnun. Flestir hafa jafnan sótt sóldýrkunarstaði til suðurlanda, en aðrir hafa sparað sér ferðina og stundað ljósabekki.

Nýlega hafa sífellt fleiri tekið til bragðs að sækja brúnkumeðferðir til að fá fallegan, brúnan lit á húðina, án þess að þurfa beinlínis að eyða tíma í sóldýrkun.

NATURASUN brúnkumeðferðin hefur notið mikilla vinsælda á síðustu árum. Meðferðin felst í því, að brúnkukremi er úðað jafnt á allan líkamann eða ákveðna hluta hans.

Mikilvægt er að skrúbba allan líkamann með kornakremi áður en komið er í meðferðina. Mæta skal í léttum bómullarfatnaði.

Meðferðin tekur um 6 klst. að virka, en eftir það er líkaminn kominn með fallegan, brúnan lit, sem endist í 4 - 6 daga.

Hafir þú spurningar um þjónustu okkar og meðferðir er þér velkomið að hringja til okkar í síma 553 5044 eða senda okkur tölvupóst.

 

 

 

 

Verðlisti Sækja verðlista á pdf formi