Líkamsmeðferðir - nudd
Við bjóðum upp á margskonar tegundir af líkamsmeðferðum og nuddi, allt eftir þörfum þínum. Hafir þú sérstakar óskir eða þarfir geturðu haft samband og athugað hvað við getum gert fyrir þig. En í öllu falli geturðu fengið innsýn í það, sem við bjóðum, hér að neðan.
Klassískt vöðvanudd
Meðferð þessi mýkir vöðva og örvar hreyfingu blóð- og sogæðavökva. Hún eykur jafnframt slökun og vellíðan.
Klassískt nudd hefur einnig áhrif á losun úrgangsefna og greiðir fyrir aðgang að næringarefnum, sem líkaminn notar sér til viðhalds og vaxtar. Það vinnur bug á þreytu og þreytutengdum verkjum, sem stafa gjarnan af einhæfri líkamsbeitingu.
Klassískt vöðvanudd, sem er þekktasta tegund nudds, er jafnframt afar áhrifaríkt við vöðvabólgu og hjálpar til við að takmarka áhrif vefjagigtar og skyldra kvilla.
Slökunarnudd
Slökunarnudd er djúpt og mýkjandi nudd, sem hefur víðtæk áhrif á vöðva líkamans og almenna líðan þína.
Partanudd
Partanudd er áhrifaríkt gegn staðbundnum óþægindum, svo sem hvað snertir höfuð, herðar, axlir og hendur.
Fótanudd
Fótanudd er mjög öflug meðferð gegn til dæmis beinhimnubólgu og þreyttum fótum. Það hefur jafnframt áhrif á líðan líkamans í heild sinni.
Höfuð- og axlanudd
Höfuð- og axlanudd er afar slakandi og verkar vel á höfuðverk og aumar axlir. Það hefur einnig, eins og allt annað nudd, áhrif á líðan líkamans í heild sinni.
Ilmolíunudd
Með ilmolíunuddi nuddum við líkaminn upp úr sérvöldum olíum, sem verka sérlega vel á margskonar aumleika og kvilla. Það vekur jafnframt upp alveg einstaka vellíðan.
Dekraðu við þig og prófaðu nuddmeðferðir okkar hjá Gyðjunni.
Hafir þú spurningar eða vantar frekari upplýsingar máttu gjarnan hringja í okkur á opnunartíma í síma 553 5044 eða senda tölvupóst
Verðlisti / Sækja verðlista á pdf formi