Húðslípun
Við bjóðum fram nýja tækni, svokallaða Ultrapeel® Pepita, við aðhlynningu húðarinnar.
Ultrapeel® Pepita er ný tækni við örslípun húðarinnnar, þar sem notaðir eru kórundumkristallar til að ná fram flögnunaráhrifum í húðinni. Pepita-meðferðin veldur ekki sársauka og krefst því hvorki formeðferðar né staðdeyfingar.
Helstu kostir Ultrapeel® Pepita eru, að þegar að loknum meðferðartíma getur viðskiptavinurinn yfirgefið stofuna með ferska og hreina húð, þar sem endurnýjun húðþekjunnar hefur þegar átt sér stað.
Meðal annars má nota Ultrapeel® Pepita-tækninga við litabreytingum, öldrunarbeltum, óhreinni húð, líflausri húð, húðþykkildum, hörundslýtum, ótímabærri öldrun húðarinnar og örum eftir bólur. Jafnframt má þannig styrkja húðvefinn, draga úr húðsliti eða jafnvel fjarlægja það að fullu.
Meðferðin byggist á því, að notaður er loftþrýstingur fíngerðra kristalla á húðina til að fjarlægja dauðar og skaddaðar húðfrumur. Snyrtifræðingurinn þinn getur getur ráðlagt þér hvaða meðferð hentar þér best, miðað við ástand húðarinnar. Að lokinni meðferð verður yfirborð húðarinnar slétt, mjúkt og bjartara ásýndum.
Ultrapeel® Pepita örslípunartæknin er læknisfræðilega prófuð. Meðferðin er einföld og sársaukalaus og er nú þegar notuð með góðum árangri víða um heim.
Verðlisti / Sæktu verðlistann á pdf-formi