Gyðjan
Snyrtistofan Gyðjan ehf. er ein elsta starfandi snyrtistofa borgarinnar, en með nýju og fersku andliti. Núverandi eigandi, Jónína Kristgeirsdóttir snyrti-og förðunarfræðingur, tók við rekstri stofunnar 1997.
Við tökum vel á móti þér í notalegu umhverfi þar sem fagmennska, nýjungar og persónuleg þjónusta eru í fyrirrúmi.
Staðsetning
Starfsemi Gyðjunnar er í glæsilegu húsnæði að Skipholti 50d. Stofan er staðsett í austanverðu húsinu, á jarðhæð, við hlið Tónastöðvarinnar og gott aðgengi er fyrir hreyfihamlaða. Smelltu hér til að sjá staðsetningu Gyðjunnar á korti.
Snyrtistofan er aðili að Félagi Íslenskra Snyrtifræðinga og Félagi Íslenskra Fótaaðgerðafræðinga
Styrkbeiðnir
Snyrtistofan Gyðjan ehf. hefur í gegnum tíðina styrkt ýmis góð málefni.
Óskir þú eftir styrk þá vinsamlega sendið beiðni á eftirfarandi netfang: jonina@gydjan.is
Styrkbeiðnir eru ekki afgreiddar í gegnum síma.