Við bjóðum upp á sérstaka dekurmeðferð, sem gerir fallegt andlit enn fegurra. Með hinni sérstöku lúxusandlitsmeðferð djúphreisnum við húðina og hitum hana með gufu, ásamt því að nudda andlit, herðar og bringu í 20 – 25 mínútur. Meðferðin felst í þægilegu nuddi, en jafnframt eru virk efni (ampula) borin á húðina. Við berum síðan þrenns konar maska á húðina, andlitsmaska, hálsmaska og augnmaska. Að lokum smyrjum við augn- háls- og andlitskremi á húðina. |




